Jólakvöldvaka Garðbúa

Nú eru skátafundirnir að fara í jólafrí og ætlum við í Garðbúum að enda árið á jólakvöldvöku þann 15. desember næstkomandi.

christmastreescoutKvöldvakan verður frá kl 17:00 til 18:30 í Skátaheimili Garðbúa að Hólmgarði 34. Þar munum við syngja og skemmta okkur og fá okkur kakó og smákökur.
Foreldrar eru velkomnir.

Skátafundir byrja svo aftur á nýju ári og eru fyrstu fundir:Fálka- og Dróttskáta 11. janúar kl. 17:00Drekaskáta 12. janúar  kl. 16:30

Við óskum ykkur gleðilegra jóla
Skátakveðja,
Kolbrún Ósk, Sædís Ósk, Egle og Nanna Guðrún

Fréttir frá Drekaskátum

Vígsla

Þann 10. nóvember síðastliðinn vígðust 6 vaskir krakkar sem Drekaskátar. Foreldrum var boðið að mæta og fylgjast með athöfninni en eftir hana var boðið uppá kaffi og kakó.
Við lukum síðan fundinum með því að teikna myndir til að setja í jól í skókassa en Garðbúar tóku þátt í því verkefni í ár.

Börnin hafa staðið sig öll sem eitt með prýði og eiga þau skátaklútinn svo sannarlega skilið. Ég vil óska öllum skátunum til hamingju með þennan áfanga.

Gistingur

Núna um helgina gistu drekaskátarnir eina nótt í skátaheimilinu. Allir komu hressir upp í skátaheimilið um 18 og hófst þá fjörið. Drekarnir byrjuðu á að hætta sér út í kuldann allir klæddir góðum úlpum og húfum þar sem við náðum í trédrumba og tálguðum spænir til þess að kveikja eld. Okkur tókst að kveikja myndarlegt bál í fyrstu tilraun enda vorum við búin að tálga gott magn af spænur og höggva aðeins minni búta og vorum því vel undirbúin. Síðan náðum við í grillstangirnar okkar og grilluðum pylsur yfir alvöru eldi. Eftir pylsurnar var enn smá glóð og lítill eldur eftir í bálinu svo við skelltum í nokkra sykurpúða 🙂

Þegar allir voru saddir og sælir fengum við að leika okkur fram að kvöldvöku þar sem við til dæmis vorum í eltingaleik, teiknuðum, spiluðum á spil, gerðum dýnubyggingar og fórum í risa svarti péturs mót. Á kvöldvökunni sungum við fallega saman nokkur skátalög inn í svefnpokunum og horfðum á fyndin skemmtiatriði. Þegar allir voru búnir að fá kakó og kex skriðum við þreytt og sátt ofan í poka og hlustuðum á æsispennandi sögu fyrir svefninn. Við vorum ekki lengi að sofna eftir alla spennuna og langa viku. Þegar við vöknuðum vorum við ekkert að drífa okkur að ganga frá heldur héldum skemmtilegt náttfatapartý þar sem við dúlluðum okkur áfram í náttfötum og svefnpokum.
Allir drekarnir voru ótrúlega duglegir og flottir og eru Garðbúar rosalega heppin að hafa svona stórglæsilegan hóp í félaginu 😀

Vígslufundur Drekaskáta

downloadÁ næsta skátafundi (fimmtudaginn 10. nóvember) mun fara fram vígsla við hátíðlega athöfn í Garðbúaheimilinu. Þá munu skátarnir fá skátaklút og þeir skátar sem hafa nú þegar fengið klút munu endurnýja skátaheitið sitt.

Ég vil því bjóða aðstandendum skátana að koma og vera með á fundinum, þar sem að þetta er mikilvægur áfangi í lífi hvers skáta.
Boðið verður uppá kaffi og kakó þegar athöfninni líkur.

Krakkarnir eru búin að vera æfa skátaheitið en hér fyrir neðan er það í heild sinni svo að þau geti rifjað það upp.

Skáta kveðja,
Egle Sipaviciute
Sveitarforingi Drekaskáta

Skátaheitið:

Ég lofa að gera það
Sem í mínu valdi stendur
til þess að gera skildu mína
við guð og ættjörðina,
að hjálpa öðrum
og halda skátalögin

Drótt- og Fálkaskátaútilega


thNæstu helgi 4.- 6. Nóvember verður farið í útilegu með fálkaskátum og dróttskátum. Mæting er klukkan 19:00 á föstudaginn í skátaheimili Garðbúa þar sem viðmunum sameinast í bíla og keyra upp í Lækjarbotna. Þar tekur við skemmtileg og fjölbeytt dagskrá þar sem við nýtum okkur nærumhverfi Lækjarbotna. Á sunnudeginum ætlum við að taka þátt í Fálkaskátadeginum sem að þessu sinni verður haldinn í Kópavogi frá 13:00 – 16:00. Við munum sjá um að ferja skátana frá Lækjabotnum yfir í Kópavog. Því lýkur helginni okkar klukkan 16:00 í skátaheimili Kópa sem er staðsett á Digranesvegi 79, 200 Kópavogi.

Mjög mikilvægt er að allir sem ætla að mæta séu skráðir í útileguna og hægt er að gera það á skatar.felog.is en bendum á að til að skrá í útileguna þarf skátinn að vera skráður í skátana. Ef þið lendið í vandrænum með skráningu sendið þá póst á gardbuar@gardbuar.com eða hringið í Nönnu starfsmann í síma 831-8822. Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 3. Nóvember.

Verð fyrir útileguna er 3000 kr og innifalið í því er allur matur, dagskrá og gisting. Gjaldið er greitt í gegnum nora skráningarkerfið í beinu framhaldi af skráningu.

Við munum að sjálfsögðu vera virk á snapchat aðgangi Garðbúa og leyfum foreldrum og aðstandendum að fylgjast með fjörinu í útilegunni. Snapchat aðgangurinn heitir gardbuar. Continue reading

Fréttir frá fálkaskátum

Nú er fálkaskátastarfið komið á fullt og hefur verið góð mæting á skátafundi svo fálkarnir fara vel af stað. Við höfum verið dugleg að fara út þegar veður leyfir og fórum meðal annars í óvissuferð niður í Fossvogsdal. Einnig erum við búin að vera að vinna í að finna nafn á sveitina okkar og flokkana og höfuð við ákveðið að vinna með Norræna goðafræði. Þema októbers er Jákvæðni og erum við búin að vera að vinna með það að vera jákvæð og stolt af því hver við erum.

Einnig höfum við verið að vinna í að gera skátaheimilið okkar fínt og krakkarnir tekið þátt og komið með hugmyndir.

Framundan er svo útilega 4. – 6. Nóvember og  jólakvöldvaka  15. Desember.

14393228_10157569557545397_1025573050_o.jpg

Haustönn 2016

Nú eru skátafundir að byrja eftir sumarfrí og hefjast á miðvikudaginn 14. september
Fundatímar í vetur:

Fálkaskátar   10 – 12 ára       Miðvikudagur 17:00 – 18:30
Dróttskátar   13 – 15 ára        Miðvikudagur 19:30 – 21:00
Drekaskátar  7 – 9 ára          Fimmtudögum 16:30 – 17:45

Í vetur verður fjölbreytt og skemmtilegt starf sem krakkarnir frá að hjálpa til við að skipuleggja. Fundir verða bæði úti og inni og því mikilvægt að koma alltaf í útifötum.

 

 

Gleðilegt sumar!

IMG_0732

 

Skátafélagið Garðbúar tóku að sjálfsögðu þátt í hátíðarhöldum hverfisins á sumardaginn fyrsta. Krakkarnir stóðu sig ótrúlega vel sem fánaberar að leiða skrúðgönguna niður Bústaðarveg að Bústaðarkirkju. Eftir skrúðgönguna tók við hátíðarhöld við Víkingsheimilið þar sem við vorum með sölubás að selja candyfloss og popp sem gekk mjög vel. Einnig vorum við með svifbrautina okkar góðu sem vakti mikla lukku eins og venjulega.

Takk allir sem hjálpuðu okkur að gera daginn svona góðan og skemmtilegan og gleðilegt sumar!!

IMG_0731IMG_0727

IMG_0726IMG_0724

IMG_0722