
Starfið að byrja

Núna fer starfið að hefjast á ný og er búið að opna fyrir skráningu og fundartíma komnir.
Kynningardagur verður 5. september kl 17:00 – 19:00 og hvetjum við alla til að mæta. Fundir byjar svo í vikunni eftir kynningardaginn. Hlökkum til að sjá alla hressa eftir gott sumarfrí.
Fundartímar:
Drekaskátasveit fyrir börn á aldrinum 7-9 ára.
Mánudagar 17:00 – 18:15
Fálkaskátasveit fyrir börn á aldrinum 10-12 ára.
Þriðjudagar 17:00 – 18:30
Dróttskátasveit fyrir börn á aldringum 13 – 15 ára.
Miðvikudagar 19:30 – 21:00
Ef það eru einhverjar spurningar eða athugasemdir þá endilega hafið samband við Nönnu starfsmann í síma 831-8822 eða á gardbuar@gardbuar.com
Útilífsskóli Garðbúa
Skráning í Útilífsskóla Garðbúa er nú í fullum gangi og byrja námskeiðin í næstu viku. Allar upplýsingar má finna hér á utilifsskoli.is og einnig er hægt að hringja í okkur í síma
831-8822
Útilífsskóli Garðbúa 2017
Núna eru skáningar í útilífsskóla Garðbúa í fullum gangi og er byrjar fyrsta námskeiðið 12. júní. Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér.
Útilífsskólastörf
Skátafélagið Garðbúar leitar af sumarstarfsfólki.
Leiðbeinendur 18 ára og eldri
Hæfniskröfur:
- reynsla af skátastarfi eða æskulýðsstarfi
- sjálfstæð vinnubrögð
- færni í mannlegum samskiptum
- áhugi og metnaður í starfi
Umsókn skal senda með tölvupósti á gardbuar@gardbuar.com og skal berast í síðasta lagi 16. apríl 2017 . Nánari upplýsingar veitir Nanna Guðrún í síma 831-8822.
Vinnuskólaliðar 9. – 10. bekkur
Einnig leitum við af nokkrum krökkum í 9. og 10. bekk til að vinna í útilífsskólanum í gengum Vinnuskóla Reykjavíkur. Þeir sem hafa áhuga getið haft samband við Nönnu Guðrúnu í síma 831-8822 eða í tölvupóst á gardbuar@gardbuar.com
Aðalfundur Garðbúa
Aðalfundur Garðbúa var haldin á fimmtudaginn 16. febrúar og var kosin ný stjórn.
Helgi Jónsson – Félagsforingi
Ágúst Loftsson – Aðstoðar félgasforingi
Sædís Ósk Helgadóttir – Ritari
Benedikt Þorgilsson – Meðstjórnandi
Kolbrún Ósk Pétursdóttir – Meðstjórnandi
Það eru skemmtilegtir tímar framundan 😉
Aðalfundur Garðbúa
Aðalfundur Garðbúar verður haldin fimmtudaginn 16. febrúar í skátaheimilinu kl 20:00
Dagskrá fundarins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Kosning félagsforingja.
- Kosning fjögurra skáta í stjórn félagsins.
- Kosning þriggja manna skálastjórnar fyrir Lækjarbotnaskála.
- Kosning eins skoðunarmanns reikninga.
- Önnur mál.
Frábært Vetrarmót
Um helgina var Vetrarmót Reykjavíkurskáta haldið á Úlfljótsvatni. Garðbúar mættu með fjölmennt lið og svo skemmtilega vildi til að við vorum með fjölmennustu fálkaskátasveitina á svæðinu.
Við mættum á föstudagskvöldið og farið var beint í setningu á mótinu, farið í nokkra leiki og svo fengu allir kakó og kex áður en við fórum að sofa.
Laugardagurinn var tekinn snemma með ræs kl 8:00. Veðrið var gullfallegt og fengu skátarnir að njóta þess í Víkingaleiknum sem var um morguninn. Þar fengu skátarnir 74 þrautir til að leysa og áttu að safna stigum. Það gekk svona glimrandi vel og enduðu strákarnir okkar, Bleiku Magnúsarnir, í 3.sæti yfir alla. Eftir Víkingaleikana fengu sér allir að borða og söfnuðu orku og við tók póstaleikurinn.
Póstaleikurinn gekk ótrúlega vel og spreyttu skátarnir sig í ýmsum verkefnum eins og að klifra og síga í klifurturninum, renna sér á snjóþotum (helst standandi) og elda úti. Skátarnir voru í leiknum allan daginn en fengu þó smá stopp þar sem Túri bakaði gómsæta köku og kanillsnúða handa öllum.
Fyrir kvöldmatinn fengu skátarnir að hvíla sig og ná aðeins í sig smá hita þar sem tærnar voru orðnar smá kaldar eftir útiveru dagsins og mætti því galvösk í kvöldmat. Eftir matinn var svo öllum skátum smalað saman og allir fengu kyndil (sem hafði verið eitt af verkefnum dagsins) og svo var gengið saman niður í strýtu þar sem kvöldvakan var. Þar var sungið og dansað en svo birtust allt í einu ísbirnir sem voru eitthvað að villast. Þegar kvöldvakan var að klárast fengu skátarnir skilaboð um að ísbirnirnir hefðu týnt hvor öðrum og væru einhversstaðar út í kuldanum og við þyrftum að hjálpa til við að finna þá.
Skátunum var skipt í hópa og fengu vísbendingu og fóru út í nóttina að bjarga ísbjörnunum, þar byrjaði næturleikurinn. Eins og við mátti að búast tók það skátana ekki langan tíma að finna ísbirnina og koma þeim saman við mikla gleði allra sem endaði í svakalegri flugeldasýningu. Inn fóru glaðir skátar og fengu kakó og kex áður en haldið var í háttinn.
Á sunnudeginum fengu skátarnir að sofa aðeins út þar sem þreytan var fremur mikil eftir langan laugardag. Við vöknuðum og gengum frá okkar dóti og héldum af stað í göngu upp að krossi. Allir stóðu sig mjög vel og náðum við öll að komast upp á topp á met tíma! Þegar við komum til baka biðu okkar pylsur og djús og svo fengu skátarnir smá frjálsan tíma áður en við slitum mótinu.
Allir fóru sáttir og glaðir og örlítið þreyttir uppí rútu og héldu heim.
Takk fyrir skemmtilegt mót og það var umtalað af öllum skátaforingjum hvað við eigum flotta og skemmtilega skáta sem tóku þátt í öllu með bros á vör 🙂
Þangað til næst!:)
Óskirnar
Vetrarmót Reykjarvíkurskáta
Vetrarmót verður á Úlfljótsvatni dagana 27.-29. janúa
r 2017.
Tilgangurinn með slíku móti er að gefa skátunum kost á hressilegri útiveru og snertingu við náttúru að vetrarlagi og er fjölbreytt dagskrá mótsins miðuð við það. Gist verður í skálum skáta að Úlfljótsvatni og elstu skátarnir fá að gista í tjöldum
Mótsgjaldið er aðeins kr. 4.000 kr. (fullt fæði, dagskrá, ferðir og skálagjald) og þarf að vera greitt fyrir 20.janúar en eftir þann tíma þá hækkar gjaldið í 5.000 kr. Mótið er fyrir fálkaskáta, dróttskáta, rekka og róver og er upplagt tækifæri skátana til að taka þátt í stórskemmtilegum og óvenjulegum viðburði.
Nauðsynlegt er að skrá skátann til þátttöku, fer skráning fram í félagatali BÍS https://skatar.felog.is/
Brottför verður frá skátamiðstöðinni að Hraunbæ 123 föstudaginn 27. janúar og er mæting 19:30 og brottför hálftíma síðar. Mikilvægt er að skátarnir hafi þá snætt kvöldverð og séu vel útbúnir í fatnaði sem þeir bera sjálfir ábyrgð á.
Heimkoma að Skátamiðstöðinni er áætluð kl 16 á sunnudeginum. Frekari upplýsingar má finna á http://www.ssr.is/vetrarmot og www.facebook.com/vetrarmot.