Lækjabotnar

Skálastjóri: Helgi Jónsson

Hægt er að bóka skálann hér.

You can book the cabin here.

Ef einhverjar spuringar eða athugasemdir eru er hægt að hafa samaband við Helga í síma 8212050 og á netfangið gardbuar@gardbuar.is

Í eigu Garðbúa er glæsilegi skátaskálinn Lækjabotnar og er hann staðsettur
Um 14 km. austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Er í landi Kópavogs í Lækjarbotnalandi. Það tekur svona um það bil 15 mínútur að keyra að skálanum.

Skálinn er mjög rúmgóður og tilvalinn fyrir litla hópa í útilegur. Skálinn er á tveimur hæðum með anddyri, geymslu, matsal og eldhús á neðri hæðinni. Í eldhúsinu er eldavél og bökunarofn svo er einnig gasgrill og kolagrill á staðnum. Á efri hæðinni er síðan svefnloft með 12 rúmgóðum tveggja manna kojum þar sem 24 manns (fullorðnir) geta gist. Inn fyrir svefnloftið er síðan lítið foringjaherbergi þar sem fjórir fullorðnir geta gist í kojum ásamt skrifborði og stól.  6 auka dýnur eru í skálanum.
Fyrir framan skálann er stór pallur sem gott er að nýta á sumrin.

Í skálanum eru reykskynjarar á báðum hæðum ásamt þremur slökkvitækjum.
Upphitun og lýsing er með rafmagni. Skálinn er tengdur vatnsveitu. Hitakútur er í skálanum sem hitar upp kalt kranavatn, tvö vatnsklósett.

Verð:
Daggjald: kr. 25.000.-
Ein gistinótt er kr. 45.000, en 35.000 fyrir skáta og annað æskulýðsstarf.
Helgargjald er 90.000, en 70.000 fyrir skáta og annað æskulýðsstarf.

Tjaldsvæðisgjald er 1500 pr mann í tjaldi.

Dagskrármöguleikar:

Við skálann er stór og góð grasflöt til tjöldunar og leikja. Nágrennið býður upp á fjölda möguleika til lengri og skemmri gönguferða, skíða-, sleðaferða, fornleifarannsókna, stjörnuskoðunar, fuglaskoðunar og jarðsögurannsókna. Góð varðeldaaðstaða er á svæðinu. Þá liggur lækur gegnum landið sem krakkar geta endalaust leikið við.

Staðsetning á já.is “Lækjarbotnaland 33”: smellið hér

Staðsetning á google map  https://goo.gl/maps/KztpwQooT4Q6C8WU9

lækjabotnarlaekjarbotnar1

One thought on “Lækjabotnar

Leave a comment