
Útbúnaðarlisti:
Fatnaður
– Skátaklútur
– Skátabúningur (skátaskyrta, skátapeysa)
– Regnföt
– Stígvél
– Gönguskór
– Strigaskór
– Úlpa/vindjakki
– Húfa
– Trefill / buff
– Vettlingar
– Ullarpeysa / flíspeysa
– Buxur (ekki gallabuxur)
– Stuttbuxur
– Sokkar / ullarsokkar
– Bolir (langerma og/eða stutterma)
– Nærföt
– Náttföt
– Ullarnærföt
– Garðbúa skikkja
– Fatnaður sem hentar í vatnasafarí / drullubolta
– Nóg af fötum til skiptanna!!!
Fyrir svefninn
– Svefnpoki
– Dýna (ekki vindsæng)
– Koddi
– Eyrnatappar (valkvætt)
– Svefngríma (valkvætt)
Ýmislegt
– Lítill bakpoki / dagpoki
– Poki undir óhrein föt
– Höfuðljós / vasaljós (passa að hafa ný batterí í því)
– Sólgleraugu
– Stílabók
– Skriffæri
– bók til yndislestrar
– Flugnanet
– Góða skapið! 🙂
Mataráhöld
– Grunnan disk
– Djúpan disk
– Hnífapör
– Kakóbolli
– Viskastykki
– Netapoki og þvottaklemma
– Vatnsflaska
– Æskilegt að mataráhöld séu létt og þægileg
Fyrir heilsu og vellíðan
– Snyrtitaska
– Handklæði
– Þvottapoki
– Tannbursti
– Tannkrem
– Hárbursti / hárgreiða
– Hársápa og næring
– Sturtusápa
– Sólarvörn
– After bite
– Flugnafæla (t.d. Mygga)
Valkvætt
– Söngbók
– Áttaviti
– Hljóðfæri
– Myndavél
– Einnota filmumyndavél
– Sjónauki / kíkir
– Landabréf
– Varðeldasessa
– Göngustafir
– Skátamerki til að býtta við aðra skáta
– Vasahnífur
– Nál og tvinni
– Öryggisnælur
– Fyrstu hjálpar kitt
- Skátabúningur – Hér er átt við flík sem merkt er félaginu og/eða skátunum. Þetta getur verið td. Skátaskyrta eða félagspeysa.
- Mataráhöld – Mikilvægt er að vera með létt og góð mataráhöld. Light My Fire matarsettin sem fást í Fjallakofanum hafa reynst vel. Við mælum ekki með að hafa mataráhöld sem geta brotnað.
- Dýna – Dýnur eru misjafnar og misstórar. Við biðjum ykkur vinsamlegast að koma ekki með vindsæng þar sem þær eru plássfrekar. Við mælum með sjálfupplásanlegum dýnum sem fást víða.
- Passa að allur útbúnaður sé vel merktur skátanum. Það sem er vel merkt ratar frekar til baka í réttar hendur.
- Athugið að listinn er aðeins til viðmiðunar, gott er að fylgjast með veðurspá ef þarf að bæta einhverju við. Við biðjum foreldra að pakka með skátunum í töskuna. Best er ef skátinn sjálfur pakkar í töskuna og fari eftir listanum og forráðafólk fari síðan yfir það með skátanum sínum.
- Ef skátinn tekur lyf skal afhenda foringja þau í upphafi ferðar. Látið fylgja með leiðbeiningar hvernig og hvenær skal taka þau.